20.01.2013 22:05

Hundasýning 23-24 feb 2012


Tekið af www.hrfi.is

Fréttir

11.12.2012 11:05:34
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ
23. - 24. febrúar 2013

Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin helgina 23. - 24. febrúar 2013.

Skráningafresti lýkur föstudaginn 25. janúar 2013. - Skráningar sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Dómarar að þessu sinni eru:  Göran Bodegard (Svíþjóð), Niksa Lemo (Króatía), Ann Ingram (Írland), Nina Karlsdottir (Svíþjóð), Hanne laine Jensen (Danmörk), Ewa Nielsen (Svíþjóð) ofl.

Vegna athugasemda vegna öryggi kreditkorta hefur félagið ákveðið að taka á móti skráningum (fyrir hunda og unga sýnendur) í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu). 

Félagsmönnum býðst einnig, á eigin ábyrgð, að senda skráningu á sýningu í gegnum tölvupóst með nafni hunds í ættbók og ættbókanúmeri (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu svo skráning sé tekin gild).  Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. 
Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu.

Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.

Breytingin mun hafa í för með sér að tafir geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.

Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. 11. janúar 2013.

Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.

  • Á þessari sýningu geta hundar fengið íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.
  • Skráning í afkvæma- og ræktunarhópa fer fram á sýningunni sjálfri. Þátttaka skal tilkynnt til viðkomandi hringstjóra.
  • Upplýsingar um hvaða gögn þarf til að skrá hunda í ættbók má nálgast hér.
  • Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í sýningaskrá geta nálgast upplýsingar hér.
  • Þeir sem vilja vera með sölu- og eða kynningarbás á sýningunni sjá hér.
  • Upplýsingar um sýningarþjálfun fyrir allar tegundir verður að finna hér.

Schafer

Nafn:

KRISTJANA

Farsími:

790-6868

Um:

Schafer ræktun - Þýskur fjárhundur

Sýningar- Þjálfun kl 20

atburður liðinn í

6 daga

Reykjavík Winner og NKU 9.júní

eftir

2 mánuði

12 daga

Deildarsýning Schaferdeildar

eftir

1 mánuð

21 daga

DNA-test

atburður liðinn í

3 ár

1 dag

Belcando hundafóður

atburður liðinn í

4 ár

11 mánuði

27 daga

Ice Tindra Bæjarrölt kl 14

eftir

2 daga

Tenglar

Flettingar í dag: 650
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 4486
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 724066
Samtals gestir: 58130
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 14:37:58