Nú er krúttin orðin mánaðar gömul, þetta er ekkert smá fljótt að líða. Og manni langar að stöðva tímann til að geta haft þau lengur en það líður að því að þau fari til nýrra eiganda sem bíða spennt eftir þeim. Ekki mun væsa um þau á þeim heimilum, er rosalega ánægð með hvolpakaupandana sem ég hef fengið Enn Baron, Blues, Bravo, Bart og Bentley stækka og stækka eru farin að fá að borða 4 x á dag rosa dugleg og öll um og yfir 3 kg. Sjáið hvað þau eru orðin stór miða við mömmu sína
Þeir eru komnir inn í stofu og hafa það fínnt þar, enda gotkassinn orðin of lítill fyrir þessa ærslabelgi oooo það er svo gaman að hofra á þá leika sér Sasha er farin að minnka að gefa þeim að drekka því þeir eru komnir með tennur upp og niðri og ekkert smá beittar Þannig að hún þarf alveg að taka á honum stóra sínum og leggjast til að leyfa þeim að fá sopa, hún er sko búin að vera dugleg að hugsa um þá, algjör perla Jæja bless í bili