Tekið af www.hrfi.is
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands
20. - 21. nóvember 2010
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram helgina 20. - 21. nóvember 2010 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Skráningafresti lýkur á miðnætti föstudaginn 22. október 2010.
Skráning á sýninguna fer fram í gegnum öruggan vefþjón hér eða á skrifstofu félagsins.
Að auki er hægt að senda skráningu með pósti eða faxi.
Skráningar sem berast með tölvupósti (að undanskildum ungum sýnendum) eða í gegnum síma eru ekki teknar gildar.
Greiða þarf fyrir sýninguna með greiðslukorti eða koma við á skrifstofu félagsins, ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka.
Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.