Opið hús vinnuhundadeildar
Þann 13.október mun Vinnuhundadeild HRFÍ standa fyrir opnu húsi á skrifstofu Hrfí, Síðumúla 15.
Við áætlum að opna húsið klukkan 19:30. Þessu má enginn missa af sem hefur áhuga á því starfi sem við bjóðum upp á,
-Drífa Gestsdóttir mun halda fyrirlestur um sporleit.
-Dóra Ásgeirsdóttir mun tala um víðavangsleit.
-Monika Karlsdóttir mun tala um hlýðni og tala lauslega um hlýðnipróf.
Við ætlum að vera með sporasett til sölu á staðnum sem fólki gefst kostur á að versla og styrkja þar með Vinnuhundadeildina. Við munum einnig fara lauslega yfir dagsskrá vinnuprófa næsta árs og svo spjalla og hafa gaman :)) Kaffi og gos verður á staðnum og meðlæti. Fólki er einnig velkomið að koma með meðlæti eða gos ef það vill.
Takið daginn frá !
Hlökkum til að sjá ykkur öll í stuði :)