Frekar stuttur fyrirvari, en við ætlum að fara í eina létta og skemmtilega göngu á morgun, laugardaginn 3.mars.
Áætlunin er að ganga Þjóðhátíðarlund í Heiðmörkinni og hafa þetta lausagöngu.
Þeir sem rata ekki þá ætlar Kata að vera við bílastæðið við
Vífilstaðarvatnið kl 12:00 (verður á rauðum Nissan Navara pallbíl) og
Íris (verður á svörtum Nissan Navara pallbíl) ætlar að vera við
bensínstöðina Olís við Rauðavatn.
Lagt verður af stað kl 12:10 upp að svæði.
Vonumst eftir að sjá sem flesta og mun eftir kúkapokum.
Kveðja
stjórn Schäferdeildarinnar