Tókum okkur saman og fórum í 3 daga æfingaferð vestur til þeirra Þórhildar og Brynhildar, sem sáu um að hjálpa til við æfingar og fl. Stóðu þær sig frábærlega og ómetanlegt að hafa þær í svona æfingaferðum og þessa aðstoð fyrir byrjendur og lengra komna. Hægt var að vera 1 til 3 daga flestir voru 3 daga.
Þórhildur er búin að gera sér frábært svæði þarna fyrir vestan með hundafimibraut með öllu tilheyrandi. Svo gaman að sjá framfarir hjá öllum eftir dagana og tala ekki um samveruna með fólki sem hefur áhuga á hundum og æfingum með hundinum sínum. Svo gisti hópurinn á tjaldstæðinu á Eldborg og tók ég stóra tjaldið mitt með og þar sátum við og grilluðum, spjölluðum og sungum saman.
Allir mjög ánægðir með ferðina og töluðu allir um að fá Klippikort hjá þeim Þórhildi og Brynhildi fyrir komandi ár.
Verður þetta vonandi árlegur viðburður hjá okkur í
Þúsund þakkir fyrir frábæra daga allir, mjög flottur hópur.
Hér koma nokkar myndir sem við tókum, en flestar tók Þórhildur hjá Hundalíf.