Skapgerðamat

MH mentaltest/skapgerðarmat

Það eru til margar gerðir af skapgerðarmati í heiminum. Það sem við á Íslandi höfum farið eftir á ættir sínar að rekja til Svíþjóðar og er í daglegu tali kallað MH mentaltest. Það er sérstaklega hannað fyrir unga hunda, og kjöraldur hunda til að fara í matið er á milli 12 og 18 mánaða. Í Svíþjóð er skylda að fara með hunda í MH skapgerðarmatið fyrir áframhaldandi þjálfun, til dæmis IPO.

Úrlausnir hundanna eru mjög mismunandi eftir tegundum, og það sem teldist gott hjá einni tegund er ekki jafn gott hjá annarri. Af þessum sökum er matið einungis framkvæmt á hreinræktuðum hundum með viðurkennda ættbók. Það er mikilvægt að kynna sér vel hvað niðurstöðurnar þýða og hvað sé einkennandi fyrir hverja tegund.

Matið samanstendur af 10 mismunandi tilbúnum aðstæðum, þar sem reynt er á ýmsa þætti í atferli hundsins, svo sem vinnu- og leikgleði, forvitni, stöðugleika, hræðslu og eiginleika til að vinna úr hræðslunni. Matið er uppbyggt þannig að byrjað er á leik en gamanið kárnar því lengra sem líður á matið með ýmsum ógnunum og áreitum. Hér á eftir verður stuttlega gerð grein fyrir þessum aðstæðum.

 

Atriði 1 - Heilsa

Eigandi hundsins gengur til prófstjóra með hundinn og heilsar honum. Prófstjóri heilsar svo hundinum og gengur með hann stuttan spöl afsíðis. Hann kemur þá til baka til eiganda og skoðar hundinn líkt og á sýningum. Hér er hæfni hunds til að ná sambandi við ókunnuga manneskju metin.

 

Atriði 2 - Leikur

Eigandi og prófstjóri kasta kaðli á milli sín og að lokum hendir prófstjóri kaðlinum frá sér. Þetta er endurtekið og svo athugar prófstjóri hvort hundurinn vilji togast á við sig. Dómari athugar áhuga hunds á leik og jafnframt hvernig hundurinn beitir sér við grip á kaðlinum.

 

Atriði 3 - Héri

Lítil tuska er bundin við reipi og dregin á milli hjóla eftir jörðinni, svo það líti út sem lítið dýr sé að skjótast áfram. "Hérinn" er dreginn í tvígang. Í þessu atriði er verið að kanna veiðhvöt hundsins sem og grip.

 

Atriði 4 - Biðstaða

Eigandi stendur kyrr með hund sinn í taumi í 3 mínútur. Þarna er verið að horfa til þess hvort hundur geti slakað á eftir spennu og leik þegar allt í einu er ekkert um að vera.

 

Atriði 5 - Grýla / Fjarlægðarleikur

Eigandi heldur í hund sinn þegar í fjarska birtist ógnvekjandi vera í svartri skikkju og kjagast um eftir brautinni. Skyndilega fer Grýlan úr skikkju sinni, dregur upp kaðal og fer að leika sér og hleypur í felur. Eigandi sleppir hundi sínum og dularfulla veran kemur aftur úr fylgsni sínu og leikur sér af ákafa með dótið sitt. Fylgst er með því hvort forvitni hundsins yfirbugar hræðsluna og hvort hann sé reiðubúinn að fara alla leið til verunnar og leika sér með henni.

 

Atriði 6 - Geirfinnur / Sjónrænt áreiti

Hundur og eigandi eru á gangi þegar taugalli skýst snögglega upp frá jörðinni. Hér er verið að bregða hundinum sjónrænt og athugað hversu hræddur eða reiður hundurinn verður og hversu vel honum gengur að vinna úr áreitinu. Þegar hundi hefur tekist að skoða gallann er gengið tvívegis í kringum gallann til að kanna eftirstöðvar hræðslunnar.

 

Atriði 7 - Skrölt / Hljóðrænt áreiti

Líkt og hjá Geirfinni eru eigandi og hundur á gangi þegar skyndilega mikil óhljóð heyrast skammt frá. Hér er hundinum brugðið með hljóðrænu áreiti og skoðuð hræðslan og getan til að vinna úr henni. Eftir skoðun á skröltinu er gengið í tvígang fram hjá skröltinu til að skoða eftirstöðvarnar.

 

Atriði 8 - Draugar

Eigandi heldur í hundinn þegar 2 hvítklæddar verur koma úr fylgsnum sínum. Þær þokast hægt og rólega í átt að hundi og eiganda, önnur í einu og svo hin. "Draugarnir" eru með stór augu og stóran munn og virka því gífurlega ógnandi fyrir hund. Þegar báðar verurnar eru komnar nánast upp að hundi snúa þær sér við og láta hendur síga niður úr búningunum og á ógnin þá að vera afstaðin. Mörg atriði eru skoðuð í þessu atriði, svo sem hversu vel hundurinn fylgist með draugunum, hvort hann ógni þeim, hversu hræddur hann verður og hversu hratt hann getur yfirunnið hræðsluna þegar ógnin er liðin hjá.

 

Atriði 9 - Leikur 2

Farið er með hund aftur að upphafsreit og eigandi kastar kaðli á milli við prófstjóra líkt og í atriði 2. Hér er litið til þess hvort leikgleðin haldi sér eftir öll þessi áreiti sem hafa átt sér stað.

 

Atriði 10 - Skot

Að síðustu er framkvæmt skotpróf og er skotið úr skammbyssu 4 sinnum til að athuga hræðslu hunds við skothljóð. Skotið er tvisvar sinnum á meðan eigandi og hundur eru að leika sér og tvisvar sinnum á meðan þeir standa kyrrir og hundurinn er í taumi.

 

Eftir öll atriðin fer dómarinn með eigandanum inn í hús og fer með honum yfir niðurstöðurnar og reynir eftir bestu getu að gera eiganda grein fyrir kostum hundsins og göllum, og fer yfir hvernig mætti mögulega bæta galla hans.

 

Hægt er að fylgjast með skapgerðarmati hjá öðrum hundum, en ávalt verður að gæta þess að trufla ekki matið. Nánari upplýsingar um skapgerðarmat er hægt að nálgast á skrifstofu HRFÍ.

 

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Bréf sem kemur frá skrifstofu þegar þú ert að fara með hund í skapgerðarmat.

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

 

Skapgerðarmat

 

 

     Skapgerðarmat fer fram í Sólheimakoti. Til að komast þangað frá Reykjavík er Suðurlandsvegur ekinn til austurs þar til komið er að skilti þar sem stendur Hafravatn. Þar er beygt til vinstri. Ekið er eftir veginum þar til komið er að skilti, á hægri hönd, þar sem stendur Sólheimakot. Ekið er (u.þ.b. 2 km) fram hjá rauða húsinu að skemmu sem er við enda vegarins. Leiðarlýsing er líka á vefsíðu félagsins www.hrfi.is Fulltrúi úr skapgerðar­matinu tekur á móti þér og hundinum og leiðbeinir þér um framhaldið.

 

     Æskilegt er að viðra hundinn vel áður en komið er með hann á próf­svæðið. Hann á að vera búinn að losa sig og á ekki að gera það á próf­svæðinu. Ekki er æskilegt að hundur merki á prófsvæðinu. Ekki er heppilegt að hundur sé nýbúinn að éta þegar hann fer í skapgerðarmat.

     Hundurinn á að vera með venjulega ól, ekki keðju og venjulegan taum sem er um 1,5m á lengd. Ekki þarf að koma með nammibita eða leikfang fyrir hundinn en má þó vera til staðar.

     Skapgerðarmat fer fram utandyra og oft er næðingssamt á prófsvæði. Menn eru því hvattir til að klæða sig eftir veðri og vindum, vera í þægilegum gönguskóm og hlífðarfatnaði við hæfi.

 

     Skapgerðarmat ekki gert á lóðatíkum. Lóðatíkur eru oft viðkvæmari en á öðrum tímum og ekki víst að matið verði sanngjarnt. Ef tík verður lóða þarf að afpanta tímann eigi síðar en á fimmtudegi fyrir skapgerðarmat. Eiganda sem mætir með lóðatík verður vísað brott og á hann ekki endurkröfurétt á þátttöku­gjaldi. Upplýsingar um lóðatíkur eiga að berast til einhvers þeirra aðila sem tilgreindur er í lok bréfsins.

     Ekki er æskilegt að koma með tíkur sem hafa verið paraðar. Eftir að 30 dagar eru liðnir frá pörun getur tík ekki farið í skapgerðarmat. Ekki má fara með tík í skapgerðarmat fyrr en 75 dögum eftir got. 

 

     Brýnt er að vera kominn á staðinn a.m.k. 15 mínútum fyrir uppgefinn próftíma. Eigandi keyrir fram hjá húsinu og leggur bílnum við skemmuna og þar má viðra hundinn í taumi. Starfsmaður úr skapgerðarmatinu kemur að skemmunni og fylgir eiganda á prófsvæðið.

Ef eigandi mætir of seint á hann á hættu að missa tímann sinn því starfsfólk þarf að halda tímaáætlun.

 

     Í skapgerðarmati er ætlast til að eigandi/stjórnandi hunds sé hlutlaus. Hann á ekki að tala við hundinn né gefa honum skipanir af nokkru tagi nema prófstjóri biðji um það. Markmiðið er að kanna eðlislæg viðbrögð hundsins við áreiti og ekki er ætlast til að eigandi/stjórnandi hunds reyni að hafa áhrif á þau.

     Eigandi má stöðva skapgerðarmat hvenær sem er áður en kemur að skotinu sem er síðasta atriðið. Ef eigandi stöðvar skapgerðarmat má hann koma aftur með hundinn. Ef eigandi fer með hundinn í gegn um skotið stendur sú niðurstaða.

 

     Misjafnt er hvernig hundar bregðast við eftir tegundum. Hér á landi er skapgerðarmatið unnið eftir sömu reglum og eru í Svíþjóð. Hundur verður að vera orðinn 12 mánaða á prófdag og æskilegur aldur er 12-18 mánaða.

     Meðlimir úr fjölskyldu mega fylgjast með skapgerðarmatinu. Þeir eru beðnir um að koma og láta vita af sér í íbúðarhúsinu. Þeir fylgja hópi starfsmanna allan tímann og mega ekki reyna að hafa áhrif á hund sem er í skapgerðarmati né tala við eiganda/stjórnanda hundsins. Að loknu skapgerðarmati fer matsmaður yfir niðurstöður skapgerðarmatsins með eiganda. Eiganda er í sjálfsvald sett hvort hann spyr matsmann eða óskar eftir ráðleggingum í tengslum við niðurstöður matsins og eru eigendur hvattir til að nýta sér það tækifæri, að því gefnu að nægur tími sé til þess.

     Gera má ráð fyrir að hundurinn verði þreyttur eftir skapgerðarmat og því er rétt að leyfa honum að hvíla sig það sem eftir er dags.

 

     Leyfilegt er að fylgjast með öðrum hundum í skapgerðarmati til að átta sig á hvernig það fer fram. Hægt er að óska eftir leyfi til að vera viðstaddur skapgerðarmat hjá þeim sem tilgreindir eru hér að neðan.

 

     Forföll ber að boða eigi síðar en á hádegi á miðvikudegi fyrir prófdag. Verður helmingur þátttökugjalds þá endurgreiddur, annars ekkert.

 

Brynja Tomer -

Sigríður Bílddal -

Steinar Lúðvíksson - 

 

 

 

Gangi ykkur vel

 

Starfsfólk skapgerðarmats

 


(Eldra bréf)
Skapgerðarmat

 

 

 

 

     Skapgerðarmat fer fram í Sólheimakoti. Til að komast þangað frá Reykjavík er Suðurlandsvegur ekinn til austurs þar til komið er að skilti þar sem stendur Hafravatn. Þar er beygt til vinstri. Ekið er eftir veginum þar til komið er að skilti, á hægri hönd, þar sem stendur Sólheimakot. Ekið er (u.þ.b. 2 km) fram hjá rauða húsinu að skemmu sem er við enda vegarins. Leiðarlýsing er líka á vefsíðu félagsins www.hrfi.is .

 

     Æskilegt er að viðra hundinn vel áður en komið er með hann á próf­svæðið. Hann á að vera búinn að losa sig og á ekki að gera það á próf­svæðinu. Ekki er æskilegt að hundur merki á prófsvæðinu.

     Hundurinn á að vera með venjulega ól, ekki keðju og venjulegan taum sem er um 1,8m á lengd. Ekki þarf að koma með nammibita eða leikfang fyrir hundinn en það er leyfilegt.

     Skapgerðarmat fer fram utandyra og oft er næðingssamt á prófsvæði. Menn eru því hvattir til að klæða sig eftir veðri og vindum, vera í þægilegum gönguskóm og hlífðarfatnaði við hæfi.

 

     Brýnt er að vera kominn á staðinn a.m.k. 15 mínútum fyrir uppgefinn próftíma. Starfsmaður úr skapgerðarmatinu kemur að skemmunni og fylgir eiganda á prófsvæðið.

Ef eigandi mætir of seint á hann á hættu að missa tímann sinn því starfsfólk þarf að halda tímaáætlun.

 

     Meðlimir úr fjölskyldu mega fylgjast með skapgerðarmatinu. Þeir eru beðnir um að koma og láta vita af sér í íbúðarhúsinu, en mega alls ekki koma að íbúðarhúsinu meðan annar hundur er í skapgerðaramti. Þeir fylgja hópi starfsmanna allan tímann og mega ekki reyna að hafa áhrif á hund sem er í skapgerðarmati né tala við eiganda/stjórnanda hundsins.

    

     Að loknu skapgerðarmati fer matsmaður yfir niðurstöður skapgerðar­matsins með eiganda. Eiganda er í sjálfsvald sett hvort hann spyr matsmann eða óskar eftir ráðleggingum í tengslum við niðurstöður matsins og eru eigendur hvattir til að nýta sér það tækifæri, að því gefnu að nægur tími sé til þess.

     Gera má ráð fyrir að hundurinn verði þreyttur eftir skapgerðarmat og því er rétt að leyfa honum að hvíla sig það sem eftir er dags.

 

     Forföll ber að boða á skrifstofu HRFÍ eigi síðar en á hádegi á miðvikudegi fyrir prófdag. Verður helmingur þátttökugjalds þá endurgreiddur, annars ekkert. Forföll á prófdegi skal til kynna í símanúmer hér að neðan.

 

Brynja Tomer -

Sigríður Bílddal -

Steinar Lúðvíksson - 

 

 

 

Gangi ykkur vel

 

Starfsfólk skapgerðarmats

 

 

 

 

Schafer

Nafn:

KRISTJANA

Farsími:

790-6868

Um:

Schafer ræktun - Þýskur fjárhundur

Sýningar- Þjálfun kl 20

eftir

3 daga

Reykjavík Winner og NKU 9.júní

eftir

2 mánuði

21 daga

Deildarsýning Schaferdeildar

eftir

1 mánuð

30 daga

DNA-test

atburður liðinn í

2 ár

11 mánuði

23 daga

Belcando hundafóður

atburður liðinn í

4 ár

11 mánuði

18 daga

Ice Tindra Bæjarrölt kl 14

eftir

11 daga

Tenglar

Flettingar í dag: 1281
Gestir í dag: 87
Flettingar í gær: 308
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 712787
Samtals gestir: 57255
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 06:20:20