12.06.2016 17:34

Ice Tindra æfingaferð júní 2016

Æfingaferð júní 2016

Tókum okkur saman og fórum í 3 daga æfingaferð vestur til þeirra Þórhildar og Brynhildar, sem sáu um að hjálpa til við æfingar og fl. Stóðu þær sig frábærlega og ómetanlegt að hafa þær í svona æfingaferðum og þessa aðstoð fyrir byrjendur og lengra komna.
Hægt var að vera 1 til 3 daga flestir voru 3 daga.

Þórhildur er búin að gera sér frábært svæði þarna fyrir vestan með hundafimibraut með öllu tilheyrandi.
Svo gaman að sjá framfarir hjá öllum eftir dagana og tala ekki um samveruna með fólki sem hefur áhuga á hundum og æfingum með hundinum sínum.
Svo gisti hópurinn á tjaldstæðinu á Eldborg og tók ég stóra tjaldið mitt með og þar sátum við og grilluðum, spjölluðum og sungum saman.

Allir mjög ánægðir með ferðina og töluðu allir um að fá Klippikort hjá þeim Þórhildi og Brynhildi fyrir komandi ár.

Verður þetta vonandi árlegur viðburður hjá okkur í
emoticon

Þúsund þakkir fyrir frábæra daga allir, mjög flottur hópur.

Hér koma nokkar myndir sem við tókum, en flestar tók Þórhildur hjá Hundalíf.



12.06.2016 14:30

Ice Tindra Ganga 12. júní 2016


Ice Tindra ganga 12. júní 2016

Hittumst í Hafnarfirði og tókum hring með fram sjónum.
Komu bæði ungir sem og eldri bæði hundar og menn.
Takk fyrir samveruna í dag.


03.06.2016 14:19

NUCH NSV AD BH SCHH3 KKL1 Giro av Røstadgården


Frábærar fréttir, ótrúlegt en satt en nú er
 NUCH NSV AD BH SCHH3 KKL1 Giro av Røstadgården orðin okkar hér hjá Ice Tindra ræktun. Erum ekki enn komin niður á jörðina eða valla að trúa því að við eigum þennan stórglæsilega og frábæran hund.

Sem er búin að sanna sig í öllu bæði vinnu, sýningum og ræktun.

Þúsund þakkir elsku Øyvind og Nina fyrir allt.




18.05.2016 08:55

Væntanlegt Ice Tindra L-got .

Búið að para meistarana saman
ISShCh Ice Tindra Gordjoss og NUCH NSV AD BH SCHH3 KKL1 Giro av Røstadgården. Mjög svo spennandi got og hlökkum við mikið til.

Hvolpar væntanlegir í júlí

 
Gordjoss HD-A2 ED-A/C                     Giro HD-A, ED-A


Nú þegar komnir nokkrir á lista eftir hvolpum, ef þú hefur áhuga senda póst á schafer68@simnet.is


Með öllum hvolpum frá Ice Tindra ræktun fylgir : 

Ættbók frá H.R.F.Í
Örmerking og heilsufarsskoðun
1.sprautan og ormahreinsun

Trygging til 1. árs frá V.Í.S
Skráning í Dýraauðkenni
  Hvolpapakki frá Bendir


16.05.2016 14:38

Ice Tindra ganga


Ice Tindra ganga 16.maí 2016

Hittumst við Grillhúsið við Sprengisand og gengum hring inn í Elliðaárdal.
Var mjög heitt og fengu sér nokkrir smá sundsprett til að kæla sig.
Svo á eftir fór við nokkur inn á Grillhúsið og fengum okkur hressingu.
Takk fyrir samveruna í dag.









01.05.2016 20:00

Giro 8. ára 1.maí 2016


8. ára í dag emoticon
Ótrúlegt en satt þá er stór höfðinginn
NUCH NSV AD BH SCHH3 KKL1 Giro av Røstadgården
8. ára í dag.
Í frábæru formi miða við aldur og gefur þeim ungu ekkert eftir. Erum svo stolt að hafa hann og geta átt kost á því að
nota hann í ræktun emoticon




Myndir Nina S

26.04.2016 00:02

Ice Tindra Krissy 4. mán


Ice Tindra Krissy 4. mán
Erum svo ánægð með Krissy, er að þroskast rosalega vel.
Verður spennandi að fylgjast með henni í framtíðinni.
Faðir hennar er hin stórglæsilegi
NUCH NSV AD BH SCHH3 KKL1 Giro av Røstadgården









Myndirnar tók Guðmundur Rafn.

16.04.2016 23:34

I-got 2.ára afmæli


I-got á afmæli í dag, þau eru 2. árs í dag.
Ice Tindra Izzy
Ice Tindra Igor
Ice Tindra Ice
Ice Tindra Ida
Til hamingju með daginn
Ekkert smá stolt af ykkur öllum og
óska eigendum til hamingju með þau.



15.04.2016 14:37

E-got 4.ára afmæli



E-got á afmæli í dag
4. ára í dag.
Til hamingju með daginn
  Ekkert smá stolt af ykkur.


Ice Tindra Elly

Ice Tindra Eron

31.03.2016 09:14

Ice Tindra Holly HD A2 og ED A


 Frábærar fréttir
komnar niðurstöður úr myndatöku á mjöðmum og olnboga hjá

Ice Tindra Holly HD-A2 og ED-AA
Óskum Þóru og Adam innilega til hamingju með Holly.




21.03.2016 11:40

Ice Tindra Flame HD-A2 og ED-A


Frábærar fréttir
vorum að fá niðurstöður úr myndatökum á mjöðmum og olnboga hjá
Ice Tindra Flame HD-A2 og ED-AA





Gaman að segja frá því að Ice Tindra Flame var á síðustu sýningu þar sem hún varð 4.besta tík tegundar,
en hún hefur ekki komið á sýningu í tæp 2 ár.
Því mjög flottur árangur hjá Flame.
Svo var Flame í ræktunarhópum okkar sem varð besti ræktunarhópur tegundar og svo fórum við með hópinn okkar á rauða dregilinn þar sem við urðum Besti ræktunarhópur dagsins af 14 hópum.



18.03.2016 15:30

Ice Tindra King


Ice Tindra King 2 1/2 mán
For: NUCH NSV AD BH SCHH3 KKL1
Giro av Røstadgården og Kolgrímu Diesel Hólm





Nú eru allir hvolparnir farnir og gengur rosalega vel með öll krúttið
á nýjum heimilum og hjá eigendum.
Fengum þessa flottu mynd af senda af fallega Ice Tindra King - Rex






27.02.2016 23:00

Sýning 27-02-2016


Frábær sýning hjá Ice Tindra ræktun

Vá þvílíkur dagur hjá okkuremoticon

Ég vil byrja að þakka ykkur öllum sem komu og voru með okkur í dag, það er alveg ómetanlegt að hafa svona stuðning og fá alla þessa hjálp þegar maður er í þessu sýningar stússi.

Þúsund þakkir allir.

Ice Tindra hundar gerðu ekkert smá gott á sýningunni í dag og óska ég ykkur eigendum til hamingju með ykkar hunda. Ekkert smá stolt af ykkur  öllum.

Það voru ekki margir hundar skráðir en þeir gerðu sko ekkert smá gott.

Dómari var Tino Pehar frá Króatíu 27-02-2016

Unghunda flokkur rakka snögghærðir

Ice Tindra Jessy Ex- Meistaraefni-CK 1.sæti

Opin flokkur tíkur snögghærðir

Ice Tindra Flame - Ex -Meistaraefni-CK 2. sæti og 4 besta tík tegundar.

Ice Tindra Gordjoss - EX- Meistarefni-CK 1.sæti - 

Besta tík tegundar með Íslenskt Meistarstig-CVC og Alþjóðlegt Meistarstig- CACIB og er þetta 3 íslenska Meistarastigið hennar og er því orðin

Íslenskur sýningameistari -ISShCh.

Endaði svo sem besti hundur tegundar -BOB


Unghunda flokki tíkur síðhærðir

Ice Tindra Joss - EX- Meistarefni 1.sæti-

önnur besta tík tegundar með íslenskt meistarstig og Alþjólegt vara meistarastig -Res CaCIB



Ice Tindra ræktunahópur var besti ræktunarhópur tegundar með heiðursverðlaun og fór svo á rauða dregilinn og keppti um besta ræktunarhóp dagsins.

Í hópnum voru

Ice Tindra Jessy, Ice Tindra Flame og Ice Tindra Gordjoss,

og gerði ekkert smá gott því

Ice Tindra ræktunarhópurinn varð besti ræktunarhópur dagsins af 14 hópum.


Þúsund þakkir fyrir alla hjálpina elsku Eva Kristinsdóttir og Thelma Dögg Freysdóttir fyrir að sýna hundana með mér, og en og aftur takk öll hin fyrir hjálpina hvort það var að vera með til stuðnings eða hjálpa til við að halda í eða ná í eitthvað, koma að norðan, það er alveg ómetanlegt.

Knús og kossar á ykkur öll





16.02.2016 00:01

Ice Tindra A-got 8.ára í dag

Ice Tindra A-got er 8. ára í dag.
Þeir eru svo yndislegir bræður.
emoticon








16.02.2016 00:00

Ice Tindra C-got 6.ára í dag


Ice Tindra C-gotið er 6. ára í dag
elskulegu dúllurnar
emoticon










Schafer

Nafn:

KRISTJANA

Farsími:

790-6868

Um:

Schafer ræktun - Þýskur fjárhundur

Sýningar- Þjálfun kl 12

eftir

3 daga

Ice Tindra ganga

eftir

10 daga

NKU/ Winter Wonderland sýning 29.nóv 2025

eftir

2 mánuði

18 daga

Alþjóðlegsýning HRFÍ 5.okt 2025

eftir

24 daga

Orivet heilsutest

atburður liðinn í

2 ár

6 daga

Belcando hundafóður

atburður liðinn í

6 ár

5 mánuði

10 daga

DNA-test

atburður liðinn í

4 ár

5 mánuði

15 daga

Tenglar

Eldra efni

Flettingar í dag: 708
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 1437
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 1856484
Samtals gestir: 109274
Tölur uppfærðar: 11.9.2025 14:35:04