Ice Tindra Liv 10.ára í dag / 14.júlí 2026
NORDICVCH C.I.B-V ISVETCH C.I.E. ISShCh ISJCh ISW-25 ISVW-24-25 VOLVW-25 RVW-25-26 RW-26 ICE TINDRA LIV
Elsku Liv okkar er orðin 10. ára og vá hvað við erum stolt af henni. Hún blómstrar bara með aldrinum því á síðustu sýningu í júní varð hún
BESTI ÖLDUNGUR SÝNINGAR BIS-1 (það fór alveg inn í hjartarætur þegar dómarinn tók á móti henni með að senda Liv og Guðrúnu fingurkoss þegar þær komu til að taka á móti fyrsta sæti í BIS-1
)og náði einnig að vinna allar tíkurnar Besta Tík tegundar- BOS.
Besti öldungur sýningar hefur hún náð þessum árangri frá því að hún kom í öldungaflokk ágúst 2024 en hennar helsti keppinautur var elsku Ice Tindra Jessy sem hefur lagt skóna á hilluna enda elsku Jessy alveg að verða 12.ára.
Besti öldungar sýningar BIS árangur Liv
2x BIS-1
1x BIS-2
1x BIS-4
Hún er búin að standa sig svo vel og ALLTAF jafn gaman að sýna hana og hennar aðal sýnandi er elsku Guðrún sem hefur ná þessum frábærum árangri með Liv 
Erum alveg hrikalega stolt af elsku Liv 