29.01.2013 22:18

FRESTA UM CA MÁNUÐ Ice Tindra hitting


ATH.

Sæl öll
Búið að ákveða að fresta hittinginum um

ca mánuð þar sem það er frekar leiðinleg spá og svo verður yngra gotið orðið eldra og getu því komið með í göngutúrinn.

Bestu kveðjur Kristjana og Ásgrímur










Ice Tindra hundaeigendur og fjölskyldur.

Við ætlum að hittast og koma saman og eiga góða stund.
2. feb 2013 kl. 13
Staðsetning kemur síðar (fer eftir veðri)
Hlökkum til að hitta ykkur.
emoticon

26.01.2013 19:49

Ótitlað


Seldur
Eigum þennan flotta rakka eftir til sölu.

Ice Tindra Forest


24.01.2013 22:15

Ice Tindra Frida 2. mán

20.01.2013 22:08

Ice Tindra Elly 9.mán

Þessi flotta skvísa hún Ice Tindra Elly býr í Noregi með fjölskyldunni sinni.
Hér er hún að leika sér á ísnum.



Hér er pabbi hennar Kolgrímu Double O Seven sem býr líka í Noregi með dóttur sinni og fjölskyldu.
Líka að leika sér á ísnum.

20.01.2013 22:05

Hundasýning 23-24 feb 2012


Tekið af www.hrfi.is

Fréttir

11.12.2012 11:05:34
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ
23. - 24. febrúar 2013

Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin helgina 23. - 24. febrúar 2013.

Skráningafresti lýkur föstudaginn 25. janúar 2013. - Skráningar sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Dómarar að þessu sinni eru:  Göran Bodegard (Svíþjóð), Niksa Lemo (Króatía), Ann Ingram (Írland), Nina Karlsdottir (Svíþjóð), Hanne laine Jensen (Danmörk), Ewa Nielsen (Svíþjóð) ofl.

Vegna athugasemda vegna öryggi kreditkorta hefur félagið ákveðið að taka á móti skráningum (fyrir hunda og unga sýnendur) í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu). 

Félagsmönnum býðst einnig, á eigin ábyrgð, að senda skráningu á sýningu í gegnum tölvupóst með nafni hunds í ættbók og ættbókanúmeri (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu svo skráning sé tekin gild).  Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. 
Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu.

Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.

Breytingin mun hafa í för með sér að tafir geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.

Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. 11. janúar 2013.

Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.

  • Á þessari sýningu geta hundar fengið íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.
  • Skráning í afkvæma- og ræktunarhópa fer fram á sýningunni sjálfri. Þátttaka skal tilkynnt til viðkomandi hringstjóra.
  • Upplýsingar um hvaða gögn þarf til að skrá hunda í ættbók má nálgast hér.
  • Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í sýningaskrá geta nálgast upplýsingar hér.
  • Þeir sem vilja vera með sölu- og eða kynningarbás á sýningunni sjá hér.
  • Upplýsingar um sýningarþjálfun fyrir allar tegundir verður að finna hér.

30.12.2012 10:40

Schaferhvolpar

Schaferhvolpar


For: Kolgrímu Double O Seven og Ice Tindra Blues

  2 rakki og 2 tíkur eftir

Með hvolpinum fylgir : 
Ættbók frá H.R.F.Í
Örmerking og heilsufarsskoðun
Trygging í 1. ár frá V.Í.S
 
Hvolpapakki frá Bendir
Afhending 21.des 2012 
 Uppl í síma 895-6490 eða
schafer68@simnet.is

Bjóðum líka upp á pössun fyrir hunda frá okkar ræktun.


22.12.2012 14:52

Jólakort 2012

18.12.2012 22:18

Myndir frá ljósmyndastofunni F-got

Komnar nýjar myndir af hvolpunum úr F-gotinu frá ljósmyndastofunni www.rut.is
Frábærar myndir, þúsund þakkir Rut mín.




01.12.2012 19:35

G-gotið

G-gotið komið með nöfn
emoticon

Ice Tindra Great
Ice Tindra Gem
Ice Tindra Gordjoss
Ice Tindra Galaxy
Ice Tindra Grizzly
Ice Tindra Gizmo
Ice Tindra Gucci



Nýjar myndir

24.11.2012 17:16

Schafer hvolpar til sölu

Schafer hvolpar til sölu úr F-goti
Eigum eftir 2 tíkur og 1 rakka

Tík

Rakki


For: Ice Tindra Aragon og Kolgrímu Diesel Hólm

Hvolparnir aldnir upp inn á heimili og því vanir öllum umhverfishljóðum og fólki.
Hvolparnir nánast húshreinir og búrvanir.
Ættbók frá H.R.F.Í
Örmerking og heilsufarsskoðun
Trygging í 1. ár frá V.Í.S afnotamissis-sjúkra og líftrygging.

Hvolpapakki frá Bendir
Tilbúnir til afhendingar.
Uppl í síma 895-6490 eða schafer68@simnet.is

Bjóðum líka upp á pössun fyrir hunda frá okkar ræktun

17.11.2012 17:07

Sýning 17. nóv 2012

Sýninginn í dag fór svona hjá Ice Tindra ræktun.

Ice Tindra Dixi Exellent og meistaraefni
Ice Tindra Daizy Very Good
Ice Tindra Dancer Very Good

 Ræktunarhóp í 3 sæti.

Takk allir fyrir daginn :-)

13.11.2012 23:15

G-got 3 vikna

Flotta G-gotið orðið 3 vikna og farið að færast fjör í kassanum.
Hvolparnir farnir að leika, snyrta sig og bíta í hvort annað.
Nýjar myndir



08.11.2012 16:42

G-got 2 vikna

G-got
2ja vikna og búnir að opna augun og er sko duglegir að drekka hjá mömmu sinni þar sem þeir eru allir
komnir vel yfir 1 kg á þyngd.

Mjög duglegir
Nýjar myndir

08.11.2012 15:23

Sýningarþjálfun Schaferdeild

Minna á þetta er í kvöld 8. nóv


Schäferdeildin verður með sýningaþjálfun á fimmtudaginn næsta 8. nóv kl 19:00 og líka 15. nóv kl 19:00 í bílastæðahúsinu á móti Líflandi sem er á Lynghálsi 3.
Skiptið kostar 500 kr. á hund og rennur óskipt til Schäferdeildarinnar. Munið eftir taum, poka og gott er að hafa nammi eða dót fyrir hundinn meðferðis.
Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja stjórnin

29.10.2012 22:43

G- got


 Fæddir 7 yndislegir hvolpar
 
3 tíkur og 4 rakkar

For: Kolgrímu Double O Seven og Ice Tindra Blues

Með hvolpinum fylgir : 
Ættbók frá H.R.F.Í
Örmerking og heilsufarsskoðun
Trygging í 1. ár frá V.Í.S
Hvolpanámskeið hjá Hundalíf
Hvolpapakki frá Bendir
Afhending 21.des 2012 
 Uppl í síma 895-6490 eða schafer68@simnet.is


Schafer

Nafn:

KRISTJANA

Farsími:

790-6868

Um:

Schafer ræktun - Þýskur fjárhundur

Sýningar- Þjálfun kl 20

atburður liðinn í

1 mánuð

17 daga

Reykjavík Winner og NKU 9.júní

eftir

1 mánuð

1 dag

Deildarsýning Schaferdeildar

eftir

10 daga

DNA-test

atburður liðinn í

3 ár

1 mánuð

12 daga

Belcando hundafóður

atburður liðinn í

5 ár

1 mánuð

7 daga

Ice Tindra Bæjarrölt kl 14

atburður liðinn í

1 mánuð

9 daga

Tenglar

Flettingar í dag: 727
Gestir í dag: 217
Flettingar í gær: 1054
Gestir í gær: 342
Samtals flettingar: 774338
Samtals gestir: 62467
Tölur uppfærðar: 8.5.2024 07:05:04